Eva Mendes verslar í Víði

Eva Mendes er stödd á Íslandi um þessar mundir en …
Eva Mendes er stödd á Íslandi um þessar mundir en hún er kærasta Ryans Goslings. ADRIEN VECZAN

Það sást til Evu Mendes í matvöruversluninni Víði við Hringbraut síðdegis í dag. Ekki er vitað hvaða erindi hún átti þangað en heimildir herma að hún hafi boðið af sér góðan þokka. „Já, hún var mjög almennileg,“ sagði einn starfsmanna verslunarinnar. Aðspurður hvað Mendes hafi keypt segist hann ekki vita það en sá sem afgreiddi hana var farinn heim af vaktinni.

Verslunin er þekkt fyrir að hafa gott úrval af íslensku grænmeti auk annarra landbúnaðarvara og lögð er áhersla á hreinleika varanna og gæði. Það má því draga þá ályktun að Mendes sé ekki dottin í sukkið að þessu sinni enda er hún annáluð fyrir heilsusamlegt líferni og glæsilegt útlit.

Verslunin Víðir stendur á horni Hringbrautar og Ánanausta í Vesturbæ …
Verslunin Víðir stendur á horni Hringbrautar og Ánanausta í Vesturbæ Reykjavíkur. Morgunblaðið/Júlíus
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál