Giftist Jóni Óttari í David Meister kjól

Margrét Hrafnsdóttir og Jón Óttar Ragnarsson ætla að ganga í …
Margrét Hrafnsdóttir og Jón Óttar Ragnarsson ætla að ganga í hjónaband þann 28. desember. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Margrét Hrafnsdóttir og Jón Óttar Ragnarsson ætla að ganga í hjónaband næsta laugardag eftir 25 ára samband. Margrét segir að þessi árstími hafi orðið fyrir valinu því þá sé svo mikill kærleikur í loftinu. 

„Kærleikurinn er svo ríkjandi og töfrar í loftinu svona rétt fyrir áramót,“ segir Margrét. Aðspurð hvernig þau hafi kynnst segir hún að leiðir þeirra hafi legið saman í atvinnuviðtali. 

„Við Jón kynntumst i atvinnuviðtali heima hjá honum! Ég var að ráða hann til þess að vera með klassískan tónlistarþátt! Það var ást við fyrstu sýn þarna fyrir 25 árum. Hann er skemmtilegasti og greindasti maður sem ég hef kynnst!“

Hún segir að brúðkaupið verði lítið og látlaust en Margrét ætlar að vera í kjól eftir heimsþekktan hönnuð. 

„Kjóllinn er eftir David Meister sem oft sést á rauða dreglinum í dag. Við höfum afþakkað gjafir og beðið gesti okkar að styðja við Fjölskylduhjálpina eftir getu!“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál