Giftu sig í leyni á Búðum

Sigvaldi Kaldalóns og Jóhanna Katrín Guðnadóttir.
Sigvaldi Kaldalóns og Jóhanna Katrín Guðnadóttir.

Sigvaldi Kaldalóns eða Svali eins og hann er kallaður, dagskrárstjóri K100 og crossfit-þjálfari, gekk að eiga unnustu sína til margra ára, Jóhönnu Katrínu Guðnadóttur, um helgina. Parið gifti sig í leyni á Búðum en hann fór á skeljarnar 2006. Tímaskortur og barneignir gerðu það að verkum að ekki varð af þessu fyrr sagði Svali í samtali við Smartland Mörtu Maríu. 

Eina fólkið sem vissi af þessu var Svavar Örn samstarfsmaður Sigvalda og unnusti hans, Daníel Örn Hinriksson, en þeir nutu helgarinnar með nýgiftu hjónunum á Búðum. 

Páll Ágúst Ólafsson gaf Svala og Jóhönnu saman en þau hafa verið par síðan 2001. Samtals eiga þau fjögur börn, tvö saman og svo áttu þau hvort sitt barnið þegar þau kynntust. 

Smartland Mörtu Maríu óskar þeim til hamingju með þennan áfanga.

Páll Ágúst Ólafsson gaf brúðhjónin saman.
Páll Ágúst Ólafsson gaf brúðhjónin saman.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál