Reynir Traustason leysir frá skjóðunni

Reynir Traustason gefur út fréttaævisögu sína.
Reynir Traustason gefur út fréttaævisögu sína. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

„Afhjúpun er fréttaævisaga mín. Sagan hefst árið 1983 þegar ég gerðist fréttaritari DV á Flateyri. Móðir mín hafði sinnt þessu samfélagslega hlutverki en þoldi illa áreitið sem fylgir því að segja fréttir. Hún bað mig, togarasjómanninn, um að taka við. Eftir að hafa hugsað mig um ákvað ég að láta slag standa og taka að mér hlutverkið. Þar með eignuðust Vestfjarðamið fréttaritara. Og ég byrjaði að klífa upp metorðastigann í fjölmiðlaheiminum. Á endanum náði ég að verða ritstjóri og einn af stærstu eigendum DV,“ segir Reynir Traustason inni á Karolina Fund en þar er hægt að kaupa bókina í forsölu.

„Í Afhjúpun fer ég í gegnum mörg af mínum stærstu fréttamálum og leyfi lesendum að skyggnast á bak við tjöldin. Ég fjalla um Landssímamálið, mál Árna Johnsen, Æsumálið og Lekamálið þar sem ég lagði allt undir. Svo eru skemmtilegu fréttirnar þarna eins og glíman við harmonikkuunnendur vegna flugdólgs sem varð þeim samferða.

Davíð Oddsson, fyrrverandi forsætisráðherra, sagði eitt sinn við mig að ég væri ekki tvöfaldur í roðinu heldur þrefaldur. Þar vísaði hann til þess að á sama fundinum kom ég fram sem formaður í stéttarfélagi, félagi í Sjálfstæðisflokknum og loks fréttaritari DV. Á köflum þurfti ég að skilja á milli þessara hlutverka minna. Mér er sérstaklega minnisstætt þegar ég varð þeirrar gæfu aðnjótandi að eiga þátt í að bjarga mannslífi þegar togarinn Krossnes SH sökk á Halamiðum. Augu allra fjölmiðla landsins voru á þessum atburði en DV var um borð.

Í Afhjúpun er farið í gegnum átökin um DV sem enduðu með því að ég var rekinn að kröfu Björns Leifssonar í World Class. „Stórhættulegur mannorðsmorðingi,“ var einkunn hans,“ segir Reynir.

Afhjúpun er áttunda bók Reynis og ákvað hann að gefa hana út sjálfur.

„Með þessu legg ég út í mikla fjárhagslega áhættu á tíma þar sem ég hef verið sviptur atvinnu minni. Ég bið því um stuðning til að minnka áhættuna. Jafnframt lofa ég skemmtilegri og áhugaverðri bók.“

Reynir Traustason.
Reynir Traustason. mbl.is/Ómar
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál