Ekki búin að skipta um mann

Ragnheiður Elín Árnadóttir deildi þessu á Facebook-síðu sinni en þar …
Ragnheiður Elín Árnadóttir deildi þessu á Facebook-síðu sinni en þar má hæglega ruglast og halda að iðnaðarráðherra sé gift Jóni Gerald Sullenberger.

„Til að forðast allan misskilning og róa stóra bróður minn sem hringdi í mig í ofboði áðan ... þá vil ég taka það sérstaklega fram að ég er ekki búin að skipta um eiginmann. Við Guðjón erum enn hamingjusamlega gift!“ segir Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, á facebooksíðu sinni. 

Með þessum skilaboðum var mynd af umfjöllun um þorrablótið í Garðabæ á baksíðu Fréttablaðsins í dag. Þar kemur fram að Ragnheiður Elín hafi mætt með eiginmanni sínum og svo er kaupmaðurinn Jón Gerald Sullenberger nefndur:

„Á meðal viðstaddra voru m.a. Ragnheiður Elín Árnadóttir iðnaðarráðherra, eiginmaður hennar, Jón Gerald Sullenberger kaupmaður, [...].“ 

Guðjón Ingi Guðjónsson og Ragnheiður Elín Árnadóttir.
Guðjón Ingi Guðjónsson og Ragnheiður Elín Árnadóttir. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Þess má geta að Ragnheiður Elín er gift Guðjóni Inga Guðjónssyni framkvæmdastjóra og á Facebook sagði hann eftirfarandi:

„Já nú skil ég hvað þú, Ragnheiður Elín Árnadóttir, áttir við þegar þú sagðir í brúðkaupinu okkar að ég væri góður KOSTUR.“

HÉR er hægt að skoða myndir af Þorrablóti Stjörnunnar.

Svona leit þetta út í Fréttablaðinu í dag.
Svona leit þetta út í Fréttablaðinu í dag.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál