Nýjasta auglýsing T-Mobile hefur vakið mikla athygli en í þeirri auglýsingu gerir Kim Kardashian grín af sjálfri sér og selfie-fíkn sinni.
Kim tekur sjálfsmyndir afar alvarlega en hún hefur einnig smá húmor fyrir þeim.
Í nýjustu auglýsingu T-Moblie hvetur Kim fólk til að bjarga keyptu gagnamagni sínu sem hægt væri að nota í að skoða sjálfsmyndir hennar. Hún segir mikið magn ónotaðs gagnamagns sé tekið af viðskiptavinum fjarskiptafyrirtækja við mánaðarmótin en T-Mobile gerir það ekki.
„Þetta er gagnamagn sem þú keyptir sem þú gætir notað til að skoða förðun mína, bakhöndina, fötn mín, ferðalögin og fötin mín.“