Þó það sé rúmur áratugur síðan sjónvarpsþátturinn um ríku fótboltafrúrnar sé farin af skjánum þarf enginn að örvænta, fótboltakappar halda ekkert aftur af sér við að glenna auðinn fyrir sauðsvörtum almúganum.
Nú síðast komst leikmaður Sunderland, Steven Fletcher, í fréttirnar þar sem hann sýndi splúnkunýjan Lamborghini Aventator á Instagram.
Áhugafólk um fótbolta virtst á einu máli um að þarna væri kappinn, sem er aðeins 27 ára, að sletta skyrinu. Hann hefði aðeins skorað sjö mörk síðustu tvö árin og hefði því síst ráð á slíkri sýningu en bíll sem þessi kostar fleiri tugi milljóna.
Steven er þó ekki sá eini sem glennir græjurnar. Meira að segja David Beckham stenst ekki freistinguna að sýna sjálfan sig í einkaþotunni eða í sundi á fokdýru hóteli en sá þarf síst að hafa áhyggjur af fjármálum í framtíðinni.
Daily Mail safnaði saman nokkrum myndum af þessum efnishyggjandi köppum en hér má sjá afraksturinn. Vonum að það sé til nóg af skyri.
Andy Carroll setti þessa mynd af sjálfum sér á Twitter með orðunum: 'Champagne spray anyone??? Eða - Mætti ég bjóða upp á kampavínsúða. #SaveWaterSprayChampagne'
Twitter
Billi Mucklow, kærasta Andy Carroll birti þetta snapp af sjálfri sér á nýja heimilinu sem skartar meðal annars hennar eigin snyrtistofu.
Instagram
Ronaldo skellti þessari inn með orðunum - Morning ride.
Instagram
Ronaldo þótti líka mikilvægt að það kæmi fram að hann ætlaði að skella sér á æfingu á þessum bíl.
Instagram
Og Beckham er duglegur að plögga samstarfsaðilum sínum. Hér situr hann í einkaþotunni og skrifar að næsta stopp sé í H&M Gran via.
Instagram
Því næst er hann mættur í laugina á þaki Marina Bay Sands hótelsins í Singapore.
Instagram
Mesut Özil setti þessa inn á samfélagsmiðlana. Hér er hann í einkaþotunni sinni á heimleið og skrifar: Góða nótt, heima er best.
Instagram
Liverpool leikmaðurinn Mario Balotelli skrapp í 4FKmotorsport sýningarsalinn í Mílanó á Ítalíu.
Instagram
„Jamie O'Hara hjá Blackpool hefur gaman af því að sýna gullin sín. Þetta setti hann á Instagram og skrifaði Það er viðskiptahugur í mér í dag, er að gera og græja."