Dóttir Johnny Depp geislaði

India Salvör, Pharrell og frú ásamt Lily-Rose Depp.
India Salvör, Pharrell og frú ásamt Lily-Rose Depp. AFP

Allt ætlaði um koll að keyra þegar Lili-Rose Depp, dóttir þeirra Vanessu Paradis og Johnny Depp, mætti með móður sinni á tískusýningu Chanel í New York í gær. 

Ungfrú Depp, sem er fimmtán ára, var í klæðnaði úr haute couture vorlínu tískuhússins en sýningin fór fram á Park Avenue Armory. Vanessa Paradis, sem nú er 42 ára, átti erfitt með skilnaðinn við stórleikarann á sínum tíma en hann er nú giftur aftur. 

Lily-Rose Depp á ekki langt að sækja fegurðina en foreldrar …
Lily-Rose Depp á ekki langt að sækja fegurðina en foreldrar hennar þykja með þeim flottustu. AFP

Indía Salvör Menuez var einnig meðal gesta en hún er rísandi stjarna á menningar og listasenunni þar vestra. Indía er, eins og við höfum áður greint frá, dóttir Jóhönnu Methúsalemsdóttur skartgripahönnuðar en mæðgurnar hafa búið í New York um árabil. 

Leikkonan Julianne Moore lét sig ekki vanta.
Leikkonan Julianne Moore lét sig ekki vanta. AFP

Óhætt er að segja að gestalistinn hafi verið stjörnum prýddur í gær en meðal gesta voru meðal annars Patti Smith, Beyoncé, Alexa Chung, Lily Collins, Dakota Johnson, Julianne Moore, Nicola Peltz, Dylan Penn, Phoebe Tonkin og sjálfur Pharrell Williams.

Julianne Moore var með svart naglalakk á táslunum og skórnir …
Julianne Moore var með svart naglalakk á táslunum og skórnir hennar lýstust upp. AFP

Vanessa Paradis, var á sínum tíma andlit fyrir Chanel ilm árið 1991 og 19 árum síðar sat hún fyrir í auglýsingum fyrir Chanel Rouge Coco varalitinn. 

Vanessa Paradis, móðir Lili-Rose, hefur löngum starfað fyrir Chanel.
Vanessa Paradis, móðir Lili-Rose, hefur löngum starfað fyrir Chanel. AFP
Pharrell Williams mætti í boðið með eiginkonuna upp á arminn.
Pharrell Williams mætti í boðið með eiginkonuna upp á arminn. AFP
Lily Collins
Lily Collins AFP
Dakota Johnson heldur kúlinu.
Dakota Johnson heldur kúlinu. AFP
Tali Lennox, dóttir Annie, hefur starfað sem myndlistarmaður og fyrirsæta.
Tali Lennox, dóttir Annie, hefur starfað sem myndlistarmaður og fyrirsæta. AFP
Alexa Chung, tískufyrirmynd.
Alexa Chung, tískufyrirmynd. AFP
Geraldine Chaplin
Geraldine Chaplin AFP
Íslandsvinurinn Patti Smith
Íslandsvinurinn Patti Smith AFP
Söngkonan Isabella Manfredi.
Söngkonan Isabella Manfredi. AFP
Julia Restoin Roitfeld, tískufyrirmynd og fyrirsæta.
Julia Restoin Roitfeld, tískufyrirmynd og fyrirsæta. AFP
Indía Salvör Menuez var meðal gesta hjá Chanel.
Indía Salvör Menuez var meðal gesta hjá Chanel. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál