Amy Schumer datt kylliflöt á rauða dregilinn

Grínistinn Amy Schumer létt sig detta í gólfið fyrir framan …
Grínistinn Amy Schumer létt sig detta í gólfið fyrir framan Kim og Kanye West. AFP

Fýlupúkanum Kanye West var ekki skemmt á rauða dreglinum á Time 100-hátíðinni í gær þegar grínleikkonan Amy Schumer lét sig detta kylliflata fyrir framan hóp ljósmyndara. Kanye stillti sér upp fyrir framan ljósmyndara með eiginkonu sinni, Kim Kardashian, þegar Schumer þóttist detta óviljandi og lenti við fætur þeirra. Kanye stökk ekki bros og labbaði í burtu.

Kanadíska leikkonan vakti svo sannarlega mikla athygli með uppátæki sínu og kom viðstöddum til að hlæja, öllum nema Kanye sjálfum. Kim virtist þó kunna að meta þennan gjörning og gat hlegið af Schumer.

„Ég sá þau og ég sagði við kynningarfulltrúa minn: „get ég látið mig detta?“ og hún sagði: „ég get ekki stoppað þig“,“ sagði Schumer í viðtali við Time seinna um kvöldið.

Kanye West var ekki skemmt þegar grínleikkonan Amy Schumer þóttist …
Kanye West var ekki skemmt þegar grínleikkonan Amy Schumer þóttist detta óviljandi í gólfið. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál