Voru í stíl og viku ekki hvor frá annarri

Sofia Vergara og Reese Witherspoon héldu utan um hvor aðra …
Sofia Vergara og Reese Witherspoon héldu utan um hvor aðra á rauða dreglinum. AFP

Þær Reese Witherspoon og Sofia Vergara voru glæsilegar á rauða dreglinum í gær á sýningu kvikmyndarinnar Hot Pursuit. Þær stöllur klæddust báðar rauðu og héldu þéttingsfast hvor utan um aðra allan tímann. 

Kjóll Vergara vakti sérstaka athygli en hann kemur úr smiðju breska hönnuðarins Amöndu Wakeley. Vergara klæddist gylltum skóm með opinni tá við kjólinn á meðan Witherspoon klæddist rauðum skóm við sinn rauða kjól.

Witherspoon og Vergara fara með aðalhlutverk í kvikmyndinni Hot Pursuit sem er nýkomin í kvikmyndahús.

Reese Witherspoon og Sofia Vergara skinu skært á rauða dreglinum.
Reese Witherspoon og Sofia Vergara skinu skært á rauða dreglinum. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál