„Barneignir rústuðu líkamanum“

Myndin sem Chrissy Teigen birti á Instagram birtist upprunalega í …
Myndin sem Chrissy Teigen birti á Instagram birtist upprunalega í W magazine. wmagazine.com

Fyrirsætan Chrissy Teigen birti krassandi ljósmynd af sér á Instagram á dögunum. Á myndinni var Teigen berbrjósta í háum nærbuxum og hvítum stígvélum. Flestir virtust sáttir með myndbirtinguna en auðvitað voru nokkrir einstaklingar sem helltu sér yfir Teigen og gagnrýndu líkama hennar. Einn vildi meina að barneignir hefðu „rústað“ líkama hennar.

Teigen er greinilega húmoristi því hún vakti athygli á athugasemdinni og minnti fylgjendur sína á að hún er barnlaus. „Ég get ekki hætt að hlæja að þessu,“ skrifaði fyrirsætan um athugasemdina.

Ljósmyndinni hefur verið eytt þar sem hún brýtur í bága við reglur Instagram.

Hjónin John Legend og Chrissy Teigen eru barnlaus.
Hjónin John Legend og Chrissy Teigen eru barnlaus. EPA
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál