Pamela Anderson er óþekkjanleg

Pamela Anderson er óþekkjanleg á myndunum.
Pamela Anderson er óþekkjanleg á myndunum. Ljósmynd/Luke Gilford

Kyntáknið Pamela Anderson er óþekkjanleg á nýjum myndum sem ljósmyndarinn Luke Gilford tók af henni. Anderson, sem er hvað þekktust fyrir leik sinn í þáttunum Baywatch sem strandvörðurinn C. J. Parker, hefur ætíð þótt mikið kyntákn.

Gilford er afar þekktur ljósmyndari og hefur starfað fyrir Dazed & Confused, V Magazine, GQ Style og The New York Times. Þá hefur hann einnig verið að gera stuttmyndir og lék Anderson í einni slíkri. Myndirnar af Anderson eru afar nútímalegar og sýna hana í allt öðru ljósi en áður. Kannski að þetta sé byrjun á nýjum kafla í lífi Anderson í hátískuheiminum.

Anderson deildi nýverið innleggi á heimasíðu sinni þar sem að hún lofaði Gilford og þakkaði fyrir samstarfið.

Á heimasíðu Gilford má sjá myndaþáttinn í heild sinni. 

Anderson er afar glæsileg.
Anderson er afar glæsileg. Ljósmynd/Luke Gilford
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál