IceHot1 mættur á leikinn

IceHot1 er mættur á leikinn.
IceHot1 er mættur á leikinn.

Heitasta notendanafn vikunnar er án efa IceHot1 eftir að fréttir af innskráningu hjónanna Þóru Margrétar Baldvinsdóttur og Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra á vefinn Ashley Madison komu í fjölmiðlum. Þóra sagði frá því á facebook-síðu sinni að þau hafi skráð sig inn fyrir forvitnissakir.

Hlynur Vídó, sem er mikill húmoristi frá Vestmannaeyjum, mætti í sérmerktri peysu með þessu nafni á leik Íslands og Hollands sem fram fer í dag. Hlynur er staddur í Hollandi og vakti merkingin á peysunni mikla athygli og ekki síst kátínu meðal samferðamanna hans.

Smartland Mörtu Maríu hefur heimildir fyrir því að hann sé ekki sá eini sem klæðist peysu með þessari áletrun enda virðist þetta komið á lista yfir frægustu notendanöfn sögunnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál