Bíður enn eftir töskunum

Guðrún Bergmann.
Guðrún Bergmann. Ljósmynd/Cenk Unver

„Eigið þið aukasett af öllu? Aukasett af hreinsikremi, dagkremi, næturkremi, andlitsfarða, maskara, tannbursta, body lotion, hárkremi og ýmsu öðru sem snýr að persónulegri umhirðu húðar og líkama? Kannski eins gott að koma sér því upp ef mikið er ferðast, því skili farangurinn þinn sér ekki þegar þú ert á heimleið, þarftu að eiga aukasett eða storma út í næstu búð, eins og ég þurfti að gera, til að kaupa aukasettið. Ferðatryggingin þín, þessi sem þú heldur að þú sért með í gegnum greiðslukortið sem þú greiddir ferðina með, dekkar þig ekki. Hún gildir sem sagt ekki þegar þú ert að koma til eigin heimalands og því þarf kostnaðurinn við aukasettið að koma úr eigin vasa,“ segir Guðrún Bergmann í sínum nýjasta pistli: 

Ég kom heim frá Orlando síðastliðinn miðvikudagsmorgun. Þegar allir farþegar voru komnir út í vél í Orlando kvöldinu áður tilkynnti flugstjórinn að vélin væri yfirhlaðin og að það þyrfti að taka af henni töskur, sem yrðu sendar til Íslands með vél frá Boston næsta dag. Þegar svona tilkynning berst vonar maður alltaf að það séu töskur einhvers annars sem skildar verða eftir, en í þessu tilviki voru það mínar og eitthvað rúmleg 100 aðrar töskur. Ég velti því fyrir mér hvort það hafi alveg gleymst að telja töskurnar við innritun eða er venjan að taka við öllu og tína svo af.

Eitthvað eru þeir hjá Icelandair ekki með dagatalið á hreinu, því þeirra næsti dagur rann ekki upp fyrr en í dag, rúmum þremur sólarhringum eftir að ég kom heim, nema því aðeins að leiðarkerfið þeirra hafi legið niðri þessa daga.

Ég sendi pósta vegna málsins til þjónustueftirlits Icelandair bæði í gær og fyrradag, en þeir hafa ekki látið svo lítið að svara þeim. Kannski hafa sérfræðingar félagsins ekki skilgreint hvað ensku orðincustomer service þýða á íslensku. Hins vegar hringdu starfsmenn Tapað, fundið deildarinnar í mig í gær og báðust afsökunar fyrir hönd félagsins. Ég sagðist móttaka hana en ekki meðtaka, þar sem félagið hefði ekki staðið við gefin loforð. Bíð enn eftir töskunum sem væntanlega koma síðdegis í dag - en nú á ég sem sagt aukasett af ýmsu, sem ég hefði ekki þurft að fjárfesta í ef töskurnar hefðu skila sér um leið og ég kom heim.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál