Hefur engan áhuga á að vera heimavinnandi

Nicole Kidman hefur ekki áhuga á því að setjast í …
Nicole Kidman hefur ekki áhuga á því að setjast í helgan stein. AFP

Leikkonan Nicole Kidman opnaði sig á dögunum um móðurhlutverkið í viðtali við tímaritið Harper‘s Bazaar.

„Ég vil vera í kringum börnin mín, og er hamingjusömust með þeim“ segir leikkonan Nicole Kidman um börn hennar og eiginmannsin Keith Urban.

„Þetta er það einfalt. En ef ég þyrfti að gefa starf mitt upp á bátinn, hvað gerði ég þá til að fá útrás fyrir listhneigð mína. Ég vil ekki vera móðir sem lifir í gegnum dætur sínar. Þess vegna reyni ég að finna jafnvægi í þessu.“

Kidman játar að það hafi verið móðir hennar sem hjálpaði henni að komast að þessari niðurstöðu.

„Mamma mín sagði, ég held að þú þurfir að fara aftur þarna út og gera eitthvað. Þegar til lengdar er litið er það reglulega best fyrir alla þar sem þú ert listamaður.“

Kidman er iðin við kolann en á þessu ári leikur hún í þremur kvikmyndum, Genius, How to Talk to Girls at Parties og Lion.

Nicole Kidman og eiginmaður hennar Keith Urban eiga saman tvö …
Nicole Kidman og eiginmaður hennar Keith Urban eiga saman tvö ung börn. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál