Hilmir Snær á Tinder

Hilmir Snær Guðnason er unidr nafninu Friðrik á Tinder.
Hilmir Snær Guðnason er unidr nafninu Friðrik á Tinder.

Einn ástsælasti leikari þjóðarinnar, Hilmir Snær Guðnason, er kominn á stefnumótaappið Tinder. Leikarinn hefur verið ákaflega eftirsóttur hjá kvenþjóðinni síðan hann steig sín fyrstu spor á leiksviðinu. Hann útskrifaðist úr Leiklistarskóla Íslands 1994 og hefur síðan þá haft næg verkefni. Hann lék til dæmis í Hárinu og Rocky Horror og kvikmyndunum Agnesi, 101 Reykjavík, Englum alheimsins, Myrkrahöfðingjanum, Reykjavík-Guesthouse, Hafinu, Mávahlátri og Brúðgumanum svo einhverjar bíómyndir séu nefnar. Hann lék til dæmis aðalhlutverkið í myndinni, Fyrir framan annað fólk, eftir Óskar Jónasson sem frumsýnd var í febrúar. 

Reyndar er Hilmir Snær ekki skráður undir sínu eigin nafni heldur nafninu Friðrik. Auk þess segist hann vera 43 ára en Hilmir Snær er í raun 46 ára. 

Tinder er ákaflega vinsælt stefnumótaapp og mikið notað af einhleypu fólki. Smartland Mörtu Maríu tók saman lista á dögunum yfir fræga á Tinder og má lesa nánar um það HÉR og HÉR. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál