Konunglega skartið hennar Kötu

Katrín hertogaynja af Cambridge á samansafn af dýrlegum skartgripum.
Katrín hertogaynja af Cambridge á samansafn af dýrlegum skartgripum.

Katrín hertogaynja af Cambridge á heilan haug af fallegum skartgripum. Konunglegum skartgripum.

Frægasti skartgripur Katrínar er líklega trúlofunarhringur hennar, en hringurinn sá tilheyrði eitt sinn Díönu prinsessu. Hringurinn, sem er engin smásmíði, er gullfallegur en hann prýðir 12 karata safír sem umkringdur er 14 demöntum. Hringurinn sjálfur er síðan úr 18 karata hvítagulli.

Trúlofunarhringur Katrínar var eitt sinn í eigu Díönu prinsessu.
Trúlofunarhringur Katrínar var eitt sinn í eigu Díönu prinsessu. Skjáskot Popsugar

Það er ekki amalegt að eiga eyrnalokka í stíl við trúlofunarhringinn. Katrín á einnig þessa forláta safírlokka, sem einnig voru í eigu Díönu prinsessu. Hertogaynjan lét þó breyta þeim lítið eitt áður en hún tók þá í notkun.

Eyrnalokkarnir passa vel við trúlofunarhringinn.
Eyrnalokkarnir passa vel við trúlofunarhringinn. mbl

Fæstir fá nokkurn tímann tækifæri á að bera hátt í 1.000 demanta í einu. Nema þeir sem eiga kost á því að fá kórónu drottningarinnar lánaða. Það kom eflaust lítið annað til greina á sjálfan brúðkaupsdag hertogaynjunnar.

Katrín bar kórónuna á brúðkaupsdaginn.
Katrín bar kórónuna á brúðkaupsdaginn. mbl

Brúðargjafir drottningarinnar voru heldur betur ekkert slor. Katrín hefur heldur betur fengið að njóta góðs af því, en þetta forláta hálsmen hefur fengið að dingla um háls hennar við nokkur tilefni. Þar með talið nokkrar konunglegar myndatökur.

Hálsmenið er sérlega veglegt.
Hálsmenið er sérlega veglegt. mbl

Ballon Bleu úrið frá Cartier var gjöf frá eiginmanni Katrínar, Vilhjálmi prins. Úrið hefur mikið tilfinningalegt gildi, enda gekk Díana prinsessa ávallt með úr frá Cartier. Í úri Katrínar er síðan að finna lítinn safír, sem tónar vel við trúlofunarhringinn.

Díana prinsessa hafði sérstakt dálæti á Cartier úrum.
Díana prinsessa hafði sérstakt dálæti á Cartier úrum. mbl

Fleiri dýrgripi Katrínar má berja augum í pistli Popsugar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál