Segir Victoriu Beckham vera með hræðilegar tennur

Katie Price er ekki sérlega hrifin af Victoriu Beckham.
Katie Price er ekki sérlega hrifin af Victoriu Beckham. Ljósmynd / Skjáskot Daily Mail

Glamúrfyrirsætan Katie Price, sem áður var þekkt sem Jordan,  var ekkert að skafa utan af því þegar hún sagði tennur tískudrottningarinnar Victoriu Beckham vera hræðilegar.

Atvikið átti sér stað í spjallþættinum Loose Women, þar sem Price er einn þáttastjórnenda. Price, sem ekki er par hrifin af Beckham, segir tískudrottninguna spara brosið því hún sé með svo hrikalega slæmar tennur.

„Hún brosir aldrei vegna þess að hún er með svo hræðilegar tennur. Mér þykir fyrir því, en það er alveg satt.“

Price hefur verið uppsigað við Beckham síðan hún gaf út lag með fyrrverandi kærasta fyrirsætunnar, Dane Bowers, en lagið kom út árið 2000.

Price lét ekki staðar numið eftir að hafa gagnrýnt tennur Beckham, heldur hélt áfram að ausa móðgunum yfir hana.

„Mér finnst hún klæða sig vel. Hún er alltaf óaðfinnanlega til höfð. Mér finnst hún þó ekki myndarleg. Hún er ekki falleg, hún er venjuleg,“ bætti fyrirsætan við.

Katie Price finnst tennur tískudrottningarinnar hræðilegar.
Katie Price finnst tennur tískudrottningarinnar hræðilegar. Ljósmynd / Skjáksot Daily Mail
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál