Alþingismaðurinn Unnur Brá Konráðsdóttir á von á barni í ágúst með kærasta sínum Sigurði Inga Sigurpálssyni. Unnur Brá situr á Alþingi fyrir Sjálfstæðisflokkinn og hefur gert það síðan 2009.
Þingkonan geislaði í Nuuk á Grænlandi á dögunum þar sem hún var gestur á ráðstefnunni Hringborð norðurslóða, en hún er varaforseti Vestnorræna ráðsins.
Smartland Mörtu Maríu óskar Unni Brá og Sigurði Inga til hamingju með óléttuna.