Sögð vera að „deita“ 18 ára strák

Kate Moss sleit nýverið sambandi sínu og Nikolai von Bismarck.
Kate Moss sleit nýverið sambandi sínu og Nikolai von Bismarck. AFP

Ofurfyrirsætan Kate Moss yngdi upp á dögunum þegar hún skipti 28 ára gömlum kærasta sínum, Nikolai von Bismarck, út fyrir 18 ára pilt að nafni Jake Curtis.

Samkvæmt frétt Daily Mail er Moss, sem er 42 ára gömul, að hitta son vinar síns, leikstjórans Richard Curtis.

„Já það er satt að hún og Nikolai eru ekki lengur saman,“ er haft eftir vini Moss. „Og það er líka satt að hún hefur notið þess að eyða tíma með Jake. Hún hefur verið spennt fyrir yngri karlmönnum síðan hún varð þrítug. Hún lítur á það sem heiður að eyða tíma með ungu og töff fólki í stað þess að breytast í gamla kerlingarálku.“

Kate Moss er sögð eiga í sambandi við Jake Curtis.
Kate Moss er sögð eiga í sambandi við Jake Curtis. Ljósmynd skjáskot Daily Mail
Hinn ungi Jake Curtis er sonur vinar Moss.
Hinn ungi Jake Curtis er sonur vinar Moss. Ljósmynd skjáskot Daily Mail
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál