Segir ekkert athugavert við fegrunaraðgerðir

Cameron Diaz segist vilja eldast náttúrulega, þrátt fyrir að hún …
Cameron Diaz segist vilja eldast náttúrulega, þrátt fyrir að hún sé ekki andvíg fegrunaraðgerðum. AFP

Cameron Diaz greindi frá því á dögunum að hún sæi ekkert athugavert við það þegar fólk gengist undir fegrunaraðgerðir. Hún segist ekki vera andvíg bótoxi og segir notkun þess geta haft góð áhrif á sálartetur fólks.

„Ég dæmi fólk alls ekki fyrir það sem lætur því líða vel. Þessar aðgerðir eru gerðar til þess að hjálpa fólki að líða betur með sjálft sig. Ef fólki líður betur í kjölfar þeirra hafa þær virkað. Ég sé ekkert að því.

Diaz viðurkenndi að hafa eitt sinn notast við bótox en segist hafa hætt því þar sem henni líkuðu ekki áhrifin.

„Það breytti andlitinu á svo furðulegan hátt. Ég hugsaði með mér, svona vil ég ekki líta út. Ég vil frekar sjá andlit mitt eldast í stað þess að sjá andlit sem ég þekki alls ekki.“

Frétt Daily Mail

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál