Gummi Ben sturlast – nýr hringitónn

Guðmundur Benediktsson.
Guðmundur Benediktsson. mbl.is/Eva Björk Ægisdóttir

Fótboltamaðurinn og knattspyrnusjónvarpsmaðurinn Gummi Ben er einhvern veginn maður dagsins og maður síðustu daga eftir frammistöðu sína í vinnunni. Hann lætur ekkert stoppa sig þegar hann er að lýsa leikjum á EM í Frakklandi og þykir ansi hreint skeleggur og skemmtilegur. Sumum verður illt í röddinni á að heyra hann æpa og láta öllum illum látum en þó ekki öllum. Ef þú þráir að fá örlítið meira af Gumma Ben inn í líf þitt þá gæti þessi hringitónn verið eitthvað. 

„Eftir stórkostlegan sigur á Austurríki 2-1 í París 22. júní missti Gummi Ben sig algjörlega og okkur fannst viðeigandi að henda í hringitón úr því.

Þú þarft að sækja hringitóninn, opna hann í iTunes og henda honum yfir á iPhone þannig. Njótið,“ segir inni á vef Macland.is. Hér fyrir neðan er hægt að nálgast hringitóninn enda fátt sem skapar eins mikla stemmningu í dagsins önn eins og að vera með svalan hringitón. 

Smelltu hér til að sækja hringitóninn.

Íslenskir áhorfendur á leik Íslands og Portúgal í Saint-Étienne.
Íslenskir áhorfendur á leik Íslands og Portúgal í Saint-Étienne. mbl.is/Skapti Hallgrímsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál