Þolir ekki brjóstagjöf á almannafæri

Katie Price er ekki sérlega hrifin af mjólkandi mæðrum.
Katie Price er ekki sérlega hrifin af mjólkandi mæðrum. Ljósmynd / skjáskot Daily Mail

Fyrrverandi glamúrfyrirsætan og fimm barna móðirin Katie Price greindi frá því á dögunum að hún kynni ekki að meta mæður sem gæfu brjóst á almannafæri. Og sér í lagi væri hún ekki hrifin af því að konur deildu myndum af brjóstagjöf á samfélagsmiðlum.

„Mér líka ekki brjóstagjafa „selfies“. Ég er ekki hlynnt því að konur séu að setja slíkar myndir á samfélagsmiðla,“ sagði Price í spjallþætti sínum, Loose Women.

„Mig langar ekkert að sjá þetta en fólk vill ábyggilega ekki sjá sjálfsmyndirnar mínar, brjóstin og allt það.“

Líkt og fram kemur í umfjöllun Daily Mail lét Price ekki þar við sitja, heldur gaf hún í skyn að hún missti hreinlega matarlystina við að sjá mjólkandi mæður gefa börnum sínum að drekka.

„Ég veit að þetta er náttúrulegur hlutur en ég vil ekki borða kvöldmatinn minn og þurfa að horfa á brjóstin á einhverri konu.“

Mörgum þykja ummæli Price eflaust skjóta skökku við, enda er hún aldeilis ófeimin við að deila myndum af eigin brjóstum á samfélagsmiðlum. Þá gortaði hún sig á dögunum yfir því að vera loksins komin með draumabrjóstin, eftir að hafa gengist undir sína áttundu brjóstastækkun.

Frétt mbl.is: Katie Price stærir sig af brjóstunum

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál