Dansparið Hanna Rún Bazev Óladóttir og eiginmaður hennar Nikita Bazev flytja nú búferlum frá Þýskalandi til Ítalíu ásamt syni sínum Vladimir Óla Bazev.
Hanna Rún greindi frá flutningunum á bloggsíðu sinni en fjölskyldan fann æðislegt hús á Ítalíu í síðustu ferð sinni þangað. Þau fluttu síðan inn síðastliðinn miðvikudag og er Vladimir Óli kominn með inngöngu á einkaleikskóla. Þá segir Hanna Rún nágrannana sérlega hlýlega en þeir komu strax að heilsa upp á þau.
Nú eru þau Hanna Rún og Nikita stödd í Team Diablo-æfingabúðunum í Caorle. Þetta eru afar stórar æfingabúðir en í þær koma um 580 pör frá 50 mismunandi löndum.
Það er mikið um að vera hjá litlu fjölskyldunni en í dag fagna þau Hanna Rún og Nikita tveggja ára brúðkaupsafmæli, en þau gengu í það heilaga hinn 26. júlí 2014.