Í innilegum atlotum í beinni frá Ólympíuleikunum í Ríó

Örin bendir á parið.
Örin bendir á parið. Ljósmynd/Skjáskot af vef Cosmopolitan

Margir hafa eflaust setið límdir fyrir framan sjónvarpið undanfarnar vikur að horfa á Ólympíuleikana í Ríó. Fréttamaðurinn Dan Walker hjá BBC News lenti í heldur skemmtilegri uppákomu þegar hann var að reyna að segja fréttir af körfuboltanum á fimmtudag. Á bak við Walker var par sem virtist vera í afar innilegum atlotum.

Margir áhorfendur sendu spurningar á Walker og spurðu hvað væri eiginlega í gangi fyrir aftan hann. Walker svaraði áhorfendum í beinni útsendingu og sagði parið aðeins vera í innilegum faðmlögum. Stuttu seinna bætti hann síðan við að þau væru í raun að lesa bók. „Þau virðast vera að lesa bók í þessum undarlegu stellingum, þetta er bara bók. Við ætlum ekki að fjalla frekar um þetta og förum núna yfir í körfuboltann.“

Frétt Cosmopolitan

Sjálfboðaliði hoppar upp í loft fyrir framan ólympíuþorpið í Ríó.
Sjálfboðaliði hoppar upp í loft fyrir framan ólympíuþorpið í Ríó. AFP



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál