Ofurfyrirsætan og raunveruleikastjarnan Kendall Jenner fékk heimsókn frá Vogue á dögunum þar sem hún var spurð 73 spurninga um lífið og tilveruna á aðeins sjö mínútum.
Í viðtalinu segist Jenner sitt helsta fegurðarráð vera að drekka nóg af vatni. Þá væri hún helst til í að stelast í fataskáp systur sinnar Kim af öllum systrunum. Sjálf yrði hún „starstruck“ ef hún sæi Angelinu Jolie.
Þetta bráðskemmtilega viðtal er hægt að sjá hér að neðan.