„Vill einhver gullhúða pottaplönturnar eins og skot“

Trump-fjölskyldan er með íburðarmikinn stíl.
Trump-fjölskyldan er með íburðarmikinn stíl. Ljósmynd úr House Beautiful

Á dögunum birtist myndasyrpa á vef Elledecor, þar sem veitt er innlit í gyllta og afar íburðarmikla íbúð Trump-hjónanna. Myndirnar vöktu gríðarlega athygli, enda stíllinn á heimilinu fremur sérstæður.

Frétt mbl.is: Allt í gulli heima hjá Trump-hjónunum

Líkt og sjá má á meðfylgjandi myndum eru allir krókar og kimar íbúðarinnar, sem staðsett er á efstu hæð í Trump-turninum, gylltir og engu líkara en Trump-hjónin hafi látið sig dreyma um sína eigin Versali.

Ekki eru þó allir á eitt sáttir við ljósmyndina, en blaðamaðurinn Markus Moulitsas hjá vefnum Kos, rýndi í hana.

„Ég veit að þessi mynd hefur verið á vafri undanfarnar vikur, en ég get bara ekki sleppt af henni takinu,“ segir Moulitsas í umfjöllun sinni.

„Ég get ekki litið undan og hef því undanfarið skoðað hana trekk í trekk. Nú skulum við telja upp þá hluti sem gera myndina óhugnanlega, skrýtna og fáránlega.“

„Donald brosir breytt, en Barron sonur hans er dapur og einmana lengst í einhverjum útnára á meðan Melania æfir „Blue Steel“-svipinn sinn.“

Þá segir pistlahöfundur að hjónin séu líklega að undirbúa piltinn fyrir þann dag þegar hann mun veiða villibráð með ólöglegum hætti í fyrsta skipti, auk þess sem hann sé látinn leika sér með glæsikerrur.

„Hinir moldríku hafa líka aðgang að sínum einkagusti, sem að þessu sinni beinist eingöngu að kjól Melaniu. Og vill einhver gullhúða pottaplönturnar eins og skot.“

Melania Trump á skrifstofunni sinni.
Melania Trump á skrifstofunni sinni. Ljósmynd úr House Beautiful
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál