Þetta borðar J. Lo til að halda sér í formi

Jennifer Lopez borðar hollan og góðan mat.
Jennifer Lopez borðar hollan og góðan mat. AFP

Söng- og leikkonan Jennifer Lopez er í hörkuformi enda æfir hún af kappi og borðar hollan og góðan mat. Lopez æfir undir handleiðslu stjörnuþjálfarans Tracy Anderson, en þess á milli er hún ekkert að háma í sig súkkulaði.

Anderson segir stjörnuna borða mikið af grænmeti og lítið af unnum matvælum. Þá segir hún stjörnuna eingöngu leggja sér ferskan og lífrænan mat til munns þó að hún notist stundum við próteinduft.

Svona lítur hefðbundinn matseðill stjörnunnar út:

Morgunmatur
Venjulega byrjar Lopez daginn með próteinþeytingi og koffeinlausu kaffi.

Hádegismatur
Í hádegismat verður salat með hollum próteingjafa oft fyrir valinu. Söngkonan er hrifin af laxi.

Kvöldmatur
Uppistaðan í kvöldmat söngkonunnar er venjulega heilkorn, líkt og kínóa, ásamt mögrum próteingjafa.

Samkvæmt frétt Byrdie er það síðan tvennt sem stjarnan lætur ekki inn fyrir sínar varir, en það er kaffi og áfengi.

Það er augljóst að söngkonan lifir heilsusamlegu lífi.
Það er augljóst að söngkonan lifir heilsusamlegu lífi. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál