Gigi Hadid neyddist til að verja sig

Gigi Hadid reiddist mjög þegar ókunnugi maðurinn greip um hana …
Gigi Hadid reiddist mjög þegar ókunnugi maðurinn greip um hana og lyfti henni upp. Skjáskot af DailyMail

Fyrirsætan Gigi Hadid kýldi frá sér þegar ókunnugur maður veittist að henni, greip utan um hana og lyfti henni upp í Mílanó í dag. Atvikið átti sér stað stuttu eftir að hún gekk tískupallinn fyrir Max Mara.

Gigi Hadid var að labba með systur sinni, Bellu Hadid, þegar maðurinn kom aftan að þeim. Þegar Gigi sló frá sér sleppti hann henni og hljóp hlæjandi í burtu.

Gigi hefur verið gagnrýnd fyrir viðbrögð sín en hún tjáði sig um málið á Twitter og sagði að hún hefði átt fullan rétt á að verja sig.

Fyrirsætan Gigi Hadid er stödd í Mílanó á tískuvikunni.
Fyrirsætan Gigi Hadid er stödd í Mílanó á tískuvikunni. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál