„Ég er klökkur, orðlaus vegna framtaksins“

Stefán Karl Stefánsson og Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir.
Stefán Karl Stefánsson og Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir. mbl.is/Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Leikarinn Stefán Karl Stefánsson hefur barist við veikindi síðustu vikur. Í næstu viku fer hann í aðgerð þar sem meinið verður skorið burt. Vinir hans hafa efnt til styrktartónleika í Þjóðleikhúsinu. 

„Nú er rannsóknum að mestu lokið og meinið fundið og staðsett. Það virðist ekki stórt og vel skurðtækt sem eru bestu fréttir sem ég hef fengið. Gulan er kominn úr hæstu hæðum og ég er farinn að ná upp orku. Fer nú heim í leyfi í nokkra daga fram að aðgerð sem verður 4 október sem er einmitt skírnardagurinn minn, fæðingardagur föðurafa míns og giftingardagur foreldra minna, heppilegri dag er ekki hægt að finna.
Kveðjur ykkar um bata styrk og bænir hafa hjálpað mér ótrúlega mikið að taka á þessu áfalli sem mun án efa breyta lífi mínu til frambúðar. Ég er hinsvegar fullur af jákvæðni og bjartsýni og tek ekki annað í mál en að koma eftir hlé og láta ykkur hlægja ennþá meir en fyrir hlé,“ sagði Stefán Karl á facebook-síðu sinni á dögunum. 

Mánudaginn 3. október verða styrktartónleikar fyrir Stefán Karl í Þjóðleikhúsinu. Landsþekktir listamenn koma fram:

Bubbi Morthens
Ný dönsk
Úlfur Úlfur
Salka Sól
Laddi
Gói
Hansa og Selma
Jón Ólafsson
Regína Ósk
Valgeir Guðjónsson
Stuðmenn

Edda Björgvinsdóttir leikkona er kynnir. 

„Það er ómetanlegt að eiga góða vini og fjölskyldu. Ég er klökkur, orðlaus vegna framtaksins og þakka auðmjúkur fyrir framlag kollega minna sem ég er svo heppinn að gera kallað mína bestu vini líka,“ segir Stefán Karl. 

Tix.is - Styrktartónleikar Stefáns Karls

Stefán Karl Stefánsson.
Stefán Karl Stefánsson. mbl.is/Rax / Ragnar Axelsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál