Kallaði Kim Kardashian feita

Donald Trump er greinilega ekki sérlega hrifinn af „stórum“ konum.
Donald Trump er greinilega ekki sérlega hrifinn af „stórum“ konum. AFP

Forsetaframbjóðandinn Donald Trump hefur lengi verið á milli tannanna á fólki, enda lætur hann ýmislegt misgáfulegt út úr sér.

Nú hefur gamalt myndband skotið upp kollinum þar sem Trump kallar Kim Kardashian feita. Þess má geta að stjarnan var ólétt þegar Trump lét ummælin falla, en myndbandið var tekið upp árið 2013 þegar hún gekk með dóttur sína.

Trump var spurður að því hvort honum þætti óeðlilegt að Kardashian, sem á fúlgur fjár, hefði skrifað gjafalista þegar hún var ólétt. Trump sá sig síðan knúinn, í óspurðum fréttum, að tjá sig um holdafar stjörnunnar.

„Hún er orðin svolítið stór. Ég ætla að segja að mér finnst að hún ætti ekki að klæða sig líkt og hún væri enn 55 kílógrömm.“

Myndbandið má sjá hér að neðan.

Klæðaburður Kim Kardashian fór greinilega fyrir brjóstið á Trump.
Klæðaburður Kim Kardashian fór greinilega fyrir brjóstið á Trump.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál