Kjóll Karlottu seldist upp á augabragði

Karlotta litla er greinilega mikil tískufyrirmynd annarra stúlkna.
Karlotta litla er greinilega mikil tískufyrirmynd annarra stúlkna. Ljósmynd / skjáskot Daily Mail

Breska konungsfjölskyldan hefur mikil áhrif á kauphegðun almúgans, enda seljast fötin sem meðlimir hennar klæðast opinberlega jafnan eins og heitar lummur.

Sú var einnig raunin eftir að litla fjölskyldan sást gera sér glaðan dag í Kanada í gær, þar sem þau eru í opinberri heimsókn. Hjónin og börnin þeirra tvö skemmtu sér konunglega, líkt og gera má ráð fyrir, á barnahátíð. Litlu krílin fengu að sletta úr klaufunum, en að sjálfsögðu voru þau sérlega fallega klædd.

Karlotta prinsessa klæddist fallegum kjól frá Pepa & Co, en merkið er í miklu uppáhaldi hjá foreldrum hennar. Að sjálfsögðu seldist kjóllinn upp á augabragði eftir að myndir af stúlkunni birtust í fjölmiðlum, en hann mátti fá á heimasíðu verslunarinnar.

Að sjálfsögðu er hönnuður kjólsins, Pepa Gonsales, sérdeilis kát með auglýsinguna.

„Við erum himinlifandi að hertogaynjan hafi valið merkið okkar fyrir heimsóknina,“ sagði Gonzales í viðtali við Daily Mail.

Kjóllinn sem Karlotta prinsessa klæddist rauk út.
Kjóllinn sem Karlotta prinsessa klæddist rauk út. Ljósmynd / skjáskot Daily Mail
Prinsessan skemmti sér konunglega á barnahátíðinni.
Prinsessan skemmti sér konunglega á barnahátíðinni. Ljósmynd / skjáskot Daily Mail
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál