Nanna Kristín og Gautur eignuðust dreng

Nanna Kristín Magnúsdóttir prýðir forsíðu MAN í október. Drengurinn kom …
Nanna Kristín Magnúsdóttir prýðir forsíðu MAN í október. Drengurinn kom í heiminn tveimur dögum áður en blaðið kom út. mbl

Nanna Kristín Magnúsdóttir, leikkona og framleiðandi, og unnusti hennar, Gautur Sturluson lögfræðingur, eignuðust dreng 3. október síðastliðinn. Móður og barni heilsast vel. 

Nanna Kristín vakti athygli á dögunum þegar hún birtist á nakin á forsíðu MAN. Í forsíðuviðtalinu sagði Nanna Kristín frá því hvernig þau Gautur hefðu hnotið um hvort annað og það hefði aldrei gerst ef þau hefðu verið að drekka. 

„Sjálfs­traustið var brotið og ég gat ekki hugsað mér að hleypa nein­um að mér aft­ur,“ seg­ir Nanna Krist­ín meðal ann­ars um líðan sína eft­ir skilnað. „Ég var ekki á leiðinni í annað sam­band en svo gerðist það al­veg ótrú­lega fljótt. Sam­eig­in­leg vin­kona okk­ar Gauts fór að benda okk­ur á hvort annað og at­huga hvort við hefðum ekki áhuga á að spjalla sam­an sem við svo gerðum í gegn­um Face­book í heil­an mánuð áður en við hitt­umst í fyrsta sinn. Ég var mjög treg til í fyrstu en samþykkti að fá mér kaffi með hon­um. Fyrsti fund­ur­inn var svo þannig að við sát­um og töluðum í fjóra tíma eða þar til okk­ur var hálfpart­inn hent út af kaffi­hús­inu,“ seg­ir Nanna Krist­ín í viðtal­inu við MAN.

Það krúttlega er að snáðinn gat ekki beðið eftir að koma í heiminn og þegar MAN kom út 5. október var hann orðinn tveggja daga gamall. Svona eru örlögin stundum. 

Gautur Sturluson og Nanna Kristín Magnúsdóttir.
Gautur Sturluson og Nanna Kristín Magnúsdóttir. mbl.is/Eggert Jóhannesson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál