Erna Ómarsdóttir nakin í myndbandi

Ragnar Kjartansson og Erna Ómarsdóttir í myndbandi VG sem var …
Ragnar Kjartansson og Erna Ómarsdóttir í myndbandi VG sem var bannað. Ljósmynd/Skjáskot úr myndbandinu

Dansarinn Erna Ómarsdóttir kemur nakin fram í kosningamyndbandi Vinstri grænna. Þar er listamaðurinn Ragnar Kjartansson í forgrunni en á bak við má sjá Ernu með grímu. Ragnar, sem er einn farsælasti listamaður samtímans, er í framboði fyrir Vinstri græn og hefur notað hugvit sitt í myndbandagerð til að laða að kjósendur. Myndbandið þótti hins vegar of gróft og var fjarlægt af Facebook-síðu Vinstri grænna vegnar nektar Ernu Ómarsdóttur. 

Frétt af mbl.is: Myndband VG fjarlægt vegna nektar

Hægt var að horfa á myndbandið á Youtube.com en það hefur nú verið fjarlægt. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál