Hjörvar og Heiðrún Lind nýtt par

Hjörvar Halfiðason og Heiðrún Lind Marteinsdóttir.
Hjörvar Halfiðason og Heiðrún Lind Marteinsdóttir. mbl.is/Stella Andrea

Fjölmiðlamaðurinn Hjörvar Hafliðason og lögmaðurinn Heiðrún Lind Marteinsdóttir framkvæmdastjóri SFS mættu saman í 50 ára afmæli Loga Bergmanns. Parið hefur verið að hittast síðustu mánuði og hefur sést til þeirra á ýmsum veitingastöðum Reykjavíkurborgar. 

Frétt af mbl.is: Partí ársins - Logi 50 ára

Bæði tvö eru miklir grínarar og má mögulega halda því fram að þarna hafi tveir mestu húmoristar landsins náð saman. Þeir sem þekkja Heiðrúnu Lind vita að hún kallar ekki allt ömmu sína en hún er lögmaður og starfaði lengi á LEX áður en hún tók við framkvæmdastjórastarfinu. 

Hjörvar stýrir þættinum Bræðslan á FM957 ásamt Kjartani Atla Kjartanssyni og hefur húmor hans þótt ná nýjum hæðum í þættinum. 

Smartland óskar parinu til hamingju með að hafa fundið hvort annað! 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál