Glansandi fín á síðasta jólakortinu

Fjölskyldan er stórglæsileg.
Fjölskyldan er stórglæsileg. Skjáskot / Elle

Fráfarandi forseti Bandaríkjanna, Barack Obama, forsetafrúin Michelle Obama og dætur þeirra, Sasha og Malia, litu stórglæsilega út á árlegu jólakorti sem sent var út á dögunum.

Samkvæmt venju eru kort send til vina, stuðningsmanna og fjölmiðla en þetta er síðasta kortið sem Obama mun senda út, enda tekur Trump við á nýju ári.

Jólakortið er fremur hefðbundið, en framan á því er að finna ljósmynd af fjölskyldunni í sínu fínasta pússi.

Ef marka má umræðu á samfélagsmiðlum munu margir sakna fjölskyldunnar ógurlega, enda deildi fólk myndum af jólakortinu í gríð og erg.

Fjölskyldan skartaði sínu fínasta pússi og var jólakortið glæsilegt eftir …
Fjölskyldan skartaði sínu fínasta pússi og var jólakortið glæsilegt eftir því. Skjáskot / Elle
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál