Hæstánægð með hrukkurnar

Gwyneth Paltrow er ánægð í eigin skinni.
Gwyneth Paltrow er ánægð í eigin skinni. AFP

Leikkonan og heilsuspekúlantinn Gwyneth Paltrow hyggst ætla að eldast náttúrulega, og er hæstánægð með hrukkurnar og gráu hárin.

„Mér finnst það ótrúlega kynþokkafullt, og ég myndi alls ekki vilja afmá ummerki áranna sem ég hef lifað úr andliti mínu, eða ferðast aftur í tímann,“ sagði leikkonan í viðtali við People.

„Auðvitað er ég með hrukkur og grá hár, en ég elska það. Það er bara hluti af mér.“

Þá segir Paltrow að sjálfstraust hennar hafi vaxið með árunum og að henni líði mun betur í eigin skinni í dag heldur en þegar hún var á þrítugsaldrinum.

„Ég hef aldrei verið hamingjusamari.“

Leikkonan er ekki feimin við að birta myndir af sér þar sem hún er óförðuð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál