Svona fór Khloé að því að léttast

Khloe Kardashian tók heilsuna föstum tökum.
Khloe Kardashian tók heilsuna föstum tökum. Tímaritið Health

Khloé Kardashian var eitt sinn kölluð feita Kardashian-systirin, en í fyrra tók hún heilsu sína föstum tökum og léttist um tæp 20 kíló.

Frétt mbl.is: Var kölluð feita systirin

Kardashian segir að breytingarnar hafi gerst hægt og bítandi, enda breytti hún lífstílnum í stað þess að reiða sig á skyndilausnir eins og fram kemur í frétt Mirror.

„Ég sagði alltaf að ég væri stórbeinótt, en eftir að ég fór að léttast ákvað ég að fá mér þjálfara. Hálfu ári síðar ákvað ég síðan að ráða næringarfræðing,“ játað Kardashian.

Kardashian slær heldur ekki slöku við í ræktinni, en hún vaknar klukkan fimm á hverjum morgni og fer á æfingu. Í stað þess að fá sér morgunverð fastar stjarnan til klukkan átta á morgnana, og fær sér í gogginn þegar hún lokið æfingu dagsins. Þá hefur hún einnig greint frá því að hún drekki allt að sex lítra af vatni á dag.

Hér sést Khloe Kardashian við hlið systur sinnar, Kourtney Kardashian.
Hér sést Khloe Kardashian við hlið systur sinnar, Kourtney Kardashian. AFP
Khloé Kardashian árið 2007.
Khloé Kardashian árið 2007. Skjáskot Mirror
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál