Egill og Fanney Birna saman á RÚV

Egill Helgason.
Egill Helgason. mbl.is/Rax

Fanney Birna Jónsdóttir og Egill Helgason verða saman með þáttinn Silfrið sem hefst á RÚV í janúar. Fanney Birna var aðstoðarritstjóri Fréttablaðsins en hún hætti í því starfi 2016. Kjarninn greinir frá þessu. 

Fanney Birna Jónsdóttir.
Fanney Birna Jónsdóttir.

Fanney Birna segir í samtali við Kjarnann að hún viti ekki hvort hún og Egill verða saman í setti eða hvort þau munu vinna sitt í hvoru lagi. 

Egill Helgason stýrði Silfri Egils frá árinu 2000 en þátturinn hóf göngu sína á Skjáeinum. Hann færði sig svo yfir á RÚV. Egill hefur alltaf þótt töluvert vinstrisinnaður og ætli ráðning Fanneyjar Birnu hafi ekki átt að framkalla meira jafnvægi því hún er hægri kona. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál