Komin með aðdáendasíðu

Eva Ruza er líklega hressasti snappari Íslands en hana má …
Eva Ruza er líklega hressasti snappari Íslands en hana má finna undir nafninu evaruza á miðlinum. Ófeigur Lýðsson

Eva Ruza Milj­evic, gleðigjafi, skemmtikraft­ur, kynn­ir og Snapchat-ari sem við spjölluðum við hér á Smartlandi nýverið, opnaði á dögunum svokallaða læk-síðu á samskiptamiðlinum Facebook eða aðdáendasíðu.

Eins og fram kom í viðtalinu við Evu, Hatar ekki athyglina, á hún orðið veglegan hóp aðdáenda og því eðlilegt framhald að opna slíka síðu. Einnig fer verkefnum þessarar skemmtilegu konu fjölgandi en hún er afar vinsæll gestasnappari hjá fyrirtækjum landsins. Nú í vikunni stýrði hún meðal annars snappinu fyrir H-Magasin og lék þar á als oddi. Eva útskýrði á Snapchat-reikningi sínum að síðan væri til þess komin að halda utan um verkefnin sín, pistla og annað gott grín.

Eva hefur ómældan húmor fyrir sjálfri sér sem gerir hana að einni fyndnustu konu landsins en eins og sjá má á nýju aðdáendasíðunni hennar, www.facebook.com/evaruzam, birti hún á dögunum fermingarmynd af sjálfri sér en uppátækið vakti mikla kátínu.

„Munið að vökva garðinn ykk­ar og aldrei missa gleðina. Lífið …
„Munið að vökva garðinn ykk­ar og aldrei missa gleðina. Lífið hef­ur upp á svo margt að bjóða. Ver­um þakk­lát fyr­ir hvern ein­asta dag sem við fáum sam­an.“ mbl
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál