Theresa May, forsætisráðherra Bretlands, bauð Donald Trump í opinbera heimsókn þegar hún sótti hann heim á dögunum.
Bretar hafa ekki tekið tíðindunum þegjandi og hljóðalaust og er óhætt að segja að nokkurrar óánægju gæti með ákvörðun May.
Frétt mbl.is: Vilja að stjórnvöld hætti við að bjóða Trump
Ekki hefur verið gefið út hvernig heimboðinu verður háttað, en verði um svokallað efsta stig opinberrar heimsóknar að ræða þarf sjálf drottningin að vera gestgjafi Trumps.
Ekki er víst að Katrín Middleton, hertogaynja af Cambridge, sé hoppandi kát með fyrirhugaða heimsókn, enda birti Trump afar óviðeigandi færslu um hana hér um árið. Þá hafði Middleton orðið fyrir því óláni að óprúttinn ljósmyndari tók af henni mynd, þar sem hún lá í sólbaði berbrjósta.
Trump sá sig síðan knúinn til að tjá sig um málefnið, eins og fram kemur í frétt ELLE.
„Hver myndi ekki taka mynd af Kötu og græða fullt af peningum ef hún skellir sér nakin í sólbað. Láttu ekki svona Kata,“ skrifaði Trump við færslu á Twitter, sem hlaut afar hörð viðbrögð.