Fær Glamour ókeypis heim til sín

Hallgrímur Ólafsson skilur ekkert í því hvers vegna hann fær …
Hallgrímur Ólafsson skilur ekkert í því hvers vegna hann fær tímaritið Glamour heim til sín frítt.

Íslenski leikarinn Hallgrímur Ólafsson skilur ekkert í því hvers vegna hann fær alltaf Glamour heim í pósti. 

Þegar Smartland hafði samband við hann sagðist hann ekki skilja neitt í neinu en blaðið hafið komið samviskusamlega heim til hans í nokkra mánuði án þess að hann borgaði fyrir það eða bæði um það sérstaklega. 

„Getur einhver sagt mér afhverju ég fæ alltaf tímaritið Glamour inn um lúguna hjá mér?#skilekkineitt,“ segir hann á Facebook síðu sinni. 

Álfrún Pálsdóttir ritstjóri Glamour segir að það sé skýring á þessari sendingu til Hallgríms. 

„Glamour fylgir núna með stóra og risapakka 365. Þeir áskrifendur fá núna Glamour sér að kostnaðarlausu. Við viljum Glamour væða landann eins og við getum,“ segir hún og bætir við: 

„Það eru allir rosa ánægðir með þetta, við byrjuðum að setja Glamour inn í risapakkann í maí og bættum stóra pakkanum við í nóvember,“ segir hún. 

Matthildur Magnúsdóttir og Hallgrímur Ólafsson.
Matthildur Magnúsdóttir og Hallgrímur Ólafsson. mbl.is/Golli / Kjartan Þorbjörnsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál