Nýjar myndir án Ara

Hér má sjá norsku konungsfjölskylduna á nýrri mynd. Hér má …
Hér má sjá norsku konungsfjölskylduna á nýrri mynd. Hér má sjá Mette-Marit, Hákon, Mörthu Louise og barnabörnin. Það vekur athygli að sonur Mette-Marit er með á myndinni en fyrr á þessu ári bað hún sérstaklega um að fjölmiðlar létu hann í friði. Ljósmynd/Kongehuset

Norska konungsfjölskyldan birti nýjar myndir af sér sem teknar voru í konungshöllinni í október síðastliðnum. Það vekur athygli að hvergi er Ari Behn, fyrrverandi eiginmann Mörthu Louise, að finna á myndunum en þau skildu síðasta vor. Myndirnar voru teknar í tilefni af áttræðisafmæli Sonju Noregsdrottningar.

Martha Louise og Ari Behn voru gift í 14 ár en síðasta vor skildi leiðir. Þau gengu í hjónaband í Þrándheimi árið 2002. Þegar þau skildu kom í ljós að hjónabandið hafði gengið illa lengi og þau gátu því miður ekki unnið á þeim erfiðleikum sem þau stóðu frammi fyrir. Saman eiga þau þrjár dætur. 

Sonja drottning og Haraldur Noregskonungur voru glæsileg á afmælisdaginn.
Sonja drottning og Haraldur Noregskonungur voru glæsileg á afmælisdaginn. Ljósmynd/Kongehuset
Hér eru Sonja og Haraldur með barnabörnin fimm. Lengst til …
Hér eru Sonja og Haraldur með barnabörnin fimm. Lengst til vinstri er Sverrir Magnús, Ingrid Alexandra, Lea Ísadóra Behn, Emma Tallulah Behn og Maud Angelica Behn. Ljósmynd/Kongehuset
Hér eru Sonja og Haraldur ásamt börnum sínum Hákoni og …
Hér eru Sonja og Haraldur ásamt börnum sínum Hákoni og Mörthu Louise. Ljósmynd/Kongehuset
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál