Hugleikur gaf Guðna Th. sokka

Hugleikur fékk handskrifað bréf frá Guðna Th. Jóhannessyni.
Hugleikur fékk handskrifað bréf frá Guðna Th. Jóhannessyni.

Listamaðurinn Hugleikur Dagsson sendi Guðna Th. Jóhannessyni forseta Íslands sokka. Guðni þakkaði fyrir sig með sérstöku þakkarbréfi. 

Þegar ég heyrði í Hugleik segir hann mér að sokkarnir sem hann sendi til Guðna Th. séu nýjasta afurðin hans. 

„Reyndar önnur sokkatýpan sem hefur komið út frá mér en þessi er flottari. Þegar við hjá Dagsson International heyrðum af sokkablæti forystusauðs vorrar auðmjúku hjarðar kom ekki annað til greina að senda honum par. Gladdi það mitt litla skorpna hjarta að fá handskrifað svar og mun ég hér eftir geyma það næst hjartanu líkt og Samuel L Jackson gerði við sitt forsetabréf í The Hateful Eight. Mér ber skylda að taka fram að allir geta nú klæðst forsetasokkunum góðu enda fáanlegir á dagsson.com,“ segir Hugleikur. 

Hugleikur Dagsson rithöfundur.
Hugleikur Dagsson rithöfundur. Ljósmynd/Youtube.com
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál