Svavar Örn Svavarsson, sem stýrir þættinum Svali og Svavar á K100 ásamt Svala Kaldalóns, fékk heldur betur góða afmælisgjöf. Svali færði honum lifandi grís í tilefni dagsins. Svali segir að Svavar tali mikið um að hann langi svo í grís og því ákvað hann að uppfylla drauminn.
„Svavar segir reglulega við mig að hann sé alsæll, eins og grís í sagi. Ég ákvað því að færa honum grís í afmælisgjöf,“ segir Svali og játar að það hafi verið mikið vesen að framkvæma þetta.
„Þetta er rosa vesen og það er ekki gott að vera með hann inni á baði hjá sér,“ segir Svali en hann þurfti að sækja grísinn deginum áður á Ormsstaði og passa hann yfir nótt. Svali játar að hann hafi verið búinn að gera ráðstafanir því hann vissi að Svavar gæti ekki haft grísinn heima hjá sér og því var hann búinn að finna fyrir hann annað heimili.
„Grísinn getur verið hjá honum í nokkra daga og svo fer hún til framtíðarforeldra. Fólk getur ekki keypt dýr og gefið þau og ekkert pælt í framhaldinu,“ segir Svali.
Þegar Svali er spurður hvernig Svavar hafi brugðist við segir hann að Svavar hafi orðið orðlaus.
„Hann var mjög ánægður, gaf henni kleinu og knúsaði hana.“