Trump verður nágranni Obama

Ivanka Trump er flutt með fjölskyldu sinni til Washington.
Ivanka Trump er flutt með fjölskyldu sinni til Washington. mbl.is/AFP

Ivanka Trump, dóttir Donalds Trump forseta Bandaríkjanna, flutti nýverið í nýtt hús. Húsið er í Washington og kostaði 590 milljónir eða 5,5 milljónir dollara. Það ætti að fara vel um dóttur forsetans og fjölskyldu hennar en húsið er með sex svefnherbergjum og sjö baðherbergjum. Húsið er staðsett í hinu eftirsótta Kalorama-hverfi í Washington og nágrannarnir ekki af verri endanum því Obama-hjónin búa í hverfinu.

Ivanka, eiginmaður hennar Jered Krushner og börnin þrjú halda líka heimili í New York en þar eiga þau penthouse-íbúð sem metin er á rúman milljarð eða tíu milljónir dollara. Búist er við því að fjölskyldan muni eyða meiri tíma í nýja húsinu í Washington þar sem Krushner starfar í ráðgjafateymi Donalds Trumps og Ivanka hjálpar pabba sínum við ýmislegt sem tengist forsetaembættinu.

Framhlið hússins er glæsileg.
Framhlið hússins er glæsileg. zillow.com
Anddyrið er fallegt og skreytt með plöntum.
Anddyrið er fallegt og skreytt með plöntum. zillow.com
zillow.com
Hjónaherbergið er rúmgott með marmaraarni.
Hjónaherbergið er rúmgott með marmaraarni. zillow.com
Lúxusbaðherbergi Ivönku Trump.
Lúxusbaðherbergi Ivönku Trump. zillow.com
Björt stofa með útsýni út á veröndina.
Björt stofa með útsýni út á veröndina. zillow.com
Bjart og nútímalegt eldhús.
Bjart og nútímalegt eldhús. zillow.com
Borðstofan er notaleg.
Borðstofan er notaleg. zillow.com
Falleg stofa.
Falleg stofa. zillow.com
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál