Leikarahjónin Unnur Ösp Stefánsdóttir og Björn Thors eignuðust tvíbura í gær. Fyrir eiga hjónin tvö börn og því tvöfaldaðist barnafjöldinn í gær.
Unnur Ösp hefur verið mikið í fjölmiðlum upp á síðkastið en hún fór með eitt af aðalhlutverkunum í Föngum sem sýndir voru á RÚV í byrjun árs. Þættirnir voru byggðir á hugmynd Unnar Aspar og Nínu Daggar Filippusdóttur en það kom í hlut Ragnars Bragasonar að leikstýra.
Björn Thors hefur verið sérlega farsæll á leiksviðinu og gert marga karaktera ódauðlega eins og Kenneth Mána sem endaði á sviði Borgarleikhússins.
Smartland óskar hjónunum til hamingju barnalánið.