Það var ekki fögur sjón sem blasti við Brynjari Karli Birgissyni þegar hann kom úr skólanum í dag. Splunkunýrri vespu sem hann fékk í fermingargjöf á dögunum var stolið fyrir utan Langholtsskóla á bilinu 12.45 - 12.50.
Vespan er Tamco F1, svört að lit og gengur fyrir bensíni. Þeir sem hafa séð vespuna mega hafa samband við föður Brynjars Karls sem er bugaður af sorg vegna þjófnaðarins.