Ríkharður og Edda nýtt par

Ríkharður Daðason og Edda Hermannsdóttir eru nýtt par.
Ríkharður Daðason og Edda Hermannsdóttir eru nýtt par. Ljósmynd/Samsett

Ríkharður Daðason og Edda Hermannsdóttir eru nýtt par. Leiðir þeirra lágu saman í byrjun árs en bæði hafa þau prýtt lista Smartlands yfir eftirsóknarverðustu einhleypu einstaklinga landsins. Saman mynda þau sterka heild enda öflug hvort á sínu sviðinu. 

Hann var atvinnumaður í fótbolta. Hann er hagfræðingur og fjárfestir en hún er samskiptastjóri Íslandsbanka, fyrrverandi blaðamaður og spyrill í Gettu betur. Í byrjun árs gaf hún út bókina Forystuþjóð ásamt Ragnhildi Steinunni Jónsdóttur. 

Parið á þrjú börn frá fyrri samböndum, hann eitt og hún tvö. Smartland óskar þeim hjartanlega til hamingju með ástina! 

Edda Hermannsdóttir, Róbert Wessman og Ragnhildar Steinunn Jónsdóttir. Edda og …
Edda Hermannsdóttir, Róbert Wessman og Ragnhildar Steinunn Jónsdóttir. Edda og Ragnheiður stýrðu pallborðsumræðum í tilefni Alþjóðlegs baráttudags kvenna. Þær gáfu starfsmönnum Alvogen og Alvotech bókina Forystuþjóð að loknum fundi.
Hermann Hreiðarsson og Ríkarður Daðason. Myndin var tekin í útgáfuboði …
Hermann Hreiðarsson og Ríkarður Daðason. Myndin var tekin í útgáfuboði Eddu og Ragnhildar Steinunnar í febrúar. Ljósmynd/Haraldur Gudjonsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál