Það að biðja maka síns er meðal stærstu stunda allra og margir leggja mikið á sig til að vera frumlegir við framkvæmdina.
Eugenius er einn þeirra en hann var mikið búinn að velta fyrir sér hvernig hann ætti að bera sig að við þetta en ákvað að hann myndi biðja kærasta síns Chris um borð í rússíbana í Disneylandi.
Bónorðið krafðist góðrar skipulagningar en þegar kom að þeim stað í rússíbanareiðinni þar sem myndir eru teknar reif hann upp blað með bónorðinu. Það var ekki fyrr en þeir félagar komu heim úr skemmtigarðinum og skoðuðu myndina sem Chris sá bónorðið.
Vart þarf að taka fram að Chris játti og er brúðkaupið fram undan. Myndin af bónorðinu er dásamleg og fylgir fréttinni. Smartland óskar þeim félögum innilega til hamingju með hvor annan.